Tekjur
Það er eitthvað óstjórnlega plebbalegt við umræðuna sem sprettur upp ár hvert í kringum birtingu á áætluðum skattgreiðslum. Ungu sjálfstæðismennirnir hafa áhyggjur af þessum "viðkvæmu persónuupplýsingum" og verja þær með kjafti og klóm fyrir skringifólki sem leggur það á sig að snuddast í þessum einskis nýta fróðleik, greinilegt að allt þetta fólk hefur lítið við tímann að gera.
Persónulega held ég að það sé hið besta mál að birta sem mest af persónuupplýsingum. Ágætur maður benti mér á það um daginn að það að birta upplýsingar um laun almennings jafnist á við að birta stuttan úrdrátt úr sjúkraskrám landsmanna og kynna statusinn á hverjum og einum ár hvert. Sem er auðvitað frábær hugmynd og mæli ég eindregið með því að heilbrigðisráðherra taki þetta til greina. Þá gætu plebbarnir stormað einu sinni á ári í skjalasafn Ríkisspítalanna og nálgast mikilvægar upplýsingar: "Þ.S. : Fékk vökva í lungað vegna veirusýkingar í apríl, hætti á pillunni í júní, losnaði loksins við klamedíuna í ágúst, er loksins betri af fyrirtíðaspennunni og þar með hætt að öskra á nágrannana og leggja þá í einelti".....þið verðið að giska á það hvað er satt og logið en það sér hver maður að þessar upplýsingar eru miklu nytsamlegri en upplýsingar um einhverja peninga eða skort á þeim. ..þannig mætti birta árlegar skýrslur um ýmsa intressant prívathluti, samskipti við lögfræðinga, sakaskrár o.s.frv....möguleikarnir eru endalausir.

4 Comments:
At 11:30 AM,
ÞG said…
Það er nú auðheyrt að þú býrð ekki yfir minni miklu reynslu sem læknaritari á geðdeild. Þar er þeta meira svona:
"Sjúklingur kom kófdrukkinn á slysadeild og sýndi penis í móttöku", "eftir sjálfsvígstilraun fyrir ári síðan og þunglyndislyfjagjöf í kjölfarið hefur Þórarinn minnkað libido" "nágrannar hringdu á lögreglu sem sótti Guðríði þar sem hún var nakin að þvo glugga á Týsgötu" og eitthvað svona. Ég skal reyndar viðurkenna að þetta er helvíti fróðlegt aflestrar, sérstaklega þegar um er að ræða þjóðþekkta einstaklinga ;)
At 12:18 PM,
thorges said…
einmitt...þetta er fróðlegt og þess vegna á þetta að vera opinbert. Til hvers að sýna penis ef enginn veit af því:)
At 12:36 PM,
ÞG said…
Jú, og náttúrlega nauðsynlegt og gott að vita ef einhver alræmdur flagari er náttúrulaus af lyfjaáti eða kaunum hlaðinn af kynsjúkdómum, svo betra kvenfólk geti forðast viðkomandi.
At 1:26 PM,
Elías said…
Blogg er lausnin.
Blogg ætti að vera borgaraleg skylda sérhvers einstaklings og koma í staðinn fyrir öll samskipti við hið opinbera, þar á meðal skattframtal.
Einnig væri hægt að nota bloggið í staðinn fyrir heimsóknir til læknis; sjúklingurinn gæti þannig lýst einkennum sínum á blogginu og læknirinn kommentað.
Post a Comment
<< Home