Þar sem frá var horfið
Jæja, þetta var fínt átta mánaða frí frá löngum og farsælum bloggferli og verður nú gerð heiðarleg tilraun til endurreisnar.
Ég er gædd þeirri náttúru að geta misst mig í mjög svo óselektívt sjónvarpsgláp og man til dæmis eftir einum vetri þar sem mér tókst grínlaust að fylgjast með flestum þáttum á öllum almennum sjónvarpsrásum í Bretlandi sem þá voru fjórar. Ég hef það mér til málsbóta að þá bjó ég í einu herbergi sem var á við meðal fataskáp að stærð og ekkert komst fyrir nema rúm og sjónvarp. Ekki gerði ég mikið af viti þann veturinn í frítíma mínum og þess vegna reyni ég venjulega að sýna lágmarks sjálfstjórn og fylgjast aðeins með útvöldum sjónvarpsþáttum á þeim stöðvum sem ég næ og eru blessunarlega aðeins tvær.
Nú hefur hinsvegar verið grafið undan þessari heilbrigðu menningarstefnu heimilisins þar sem einn vinur minn, sem héðan í frá mun ganga undir nafninu Satan, lánaði mér fyrstu seríur af Sópranó fjölskyldunni og Lost. Og reyndar líka fyrstu seríuna af snilldarantíksápunni Married with Children, var búin að gleyma þvílíkur eðalsubbuskapur er þar á ferð. En semsagt, nú mun ég héðan í frá neyðast til að fylgjast með þessum andskotans þáttum. Fy fan.

6 Comments:
At 7:57 AM,
ÞG said…
Ekki Lost - þú endar á hæli.
At 8:42 AM,
Elías Halldór said…
Þú hefur prófað Wikipedia og Project Gutenberg?
At 10:26 AM,
thorges said…
of seint, þórdís, of seint.....hvað varðar wikipediu og gútenberg þá hef ég eitt dágóðum tíma þar, þó ekki jafn miklum tíma og í að lesa bókalista á amazon sem skringifólk dundar sér við að setja saman
At 2:14 PM,
ÞG said…
Ég horfði á fjóra þætti af Lost og var nokkuð spennt, datt svo út í smá tími og reyndi að byrja aftur en þá var dellan orðin svo yfirgengileg að ég hætti.
At 2:18 PM,
Elías said…
Það getur bara orðið svo helvíti erfitt að linka í Lost á blogginu sínu.
At 5:49 PM,
Anonymous said…
Excellent, love it! » »
Post a Comment
<< Home