Matreiðsla
Nú var að koma út í enskri þýðingu matreiðslubók eftir Gerard Depardieu, leikarahnullunginn knáa. Nú veit ég ekki mikið um matargerðarhæfileika leikarans en er þó búin að fletta þessari bók sem fæst að sjálfsögðu í öllum betri bókabúðum. Ekki eru þetta nú frumlegar uppskriftir hjá kallinum, þetta eru einhverjar lauksúpuuppskriftir, bourignon buff, hænsn í víni og fleiri klassískar uppskriftir sem má finna í öllum matreiðslubókum um klassíska franska matargerð. Frumlegri eru hinsvegar matargerðarupplýsingar sem birtast í nýlegu viðtali við hann í Guardian þar sem hann segir lesendum frá því hvernig broddgeltir voru matreiddir í sveitinni þegar hann var lítill. Í stuttu máli sagt tekur maður broddgölt og blæs upp í rassinn á honum þar til broddarnir detta af (ég reikna með að þegar að þessu kemur sé broddgölturinn þegar dauður). Síðan á að maka drullu utan um broddgöltinn og kasta honum á eldstæðið þar sem hann mallar dágóða stund og voila - steikin tilbúin. Ekki fann ég þessa skemmtilegu uppskrift í bókinni.
Af Gerard er það annars að frétta að hann er að hugsa um að minnka drykkjuna niður í svona sirka 4 rauðvín á dag og hætta að leika í kvikmyndum. Einnig kom fram að tvítuga fyrirsætukærastan hans er með glútenofnæmi. Gaman að þessu.
Af Gerard er það annars að frétta að hann er að hugsa um að minnka drykkjuna niður í svona sirka 4 rauðvín á dag og hætta að leika í kvikmyndum. Einnig kom fram að tvítuga fyrirsætukærastan hans er með glútenofnæmi. Gaman að þessu.

8 Comments:
At 10:16 AM,
ÞG said…
Helvíti líst mér vel á þetta!
At 12:31 PM,
Nanna said…
Hefðbundna aðferðin við broddgaltamatreiðslu er að maka leir utan á hann og baka hann svo í eldi þar til leirinn er harður. Svo þegar hann er brotinn utan af fylgja broddarnir með. Kannast ekki við þetta með blásturinn, finnst það óþarfa vesen.
At 2:35 PM,
thorges said…
Ætli blásturinn hafi ekki bara verið skemmtiatriði í fásinninu þarna í frakklandssveitum
At 2:46 PM,
Bird said…
Já - kom fagnandi á svæðið, en Opinberunarbókin er þegar á: http://arniheimir.blogspot.com/
Skiptir það máli?
At 7:33 AM,
ÞG said…
Og svo á líka að blogga næsta dag!
At 9:24 AM,
Hildigunnur said…
og jafnvel þann þarnæsta líka...
At 4:54 PM,
kókó said…
úff - ég næ honum ekki í bráð, nema hann skeri það niður í 4 á mánuði!!!
At 6:03 PM,
Anonymous said…
Looking for information and found it at this great site... Mitsubishi+dvd+player venlafaxine en risperidone Real free spyware removal lowest price dvd player state tax mailing pilates kits netscape webhosting 220 vols appliances loves cum Culinary school in lexington ky http://www.phone-8.info impotence meat Esthetique dental Furniture wooten patent desk steiff toys 98 download dvd player window Bromanite driveway
Post a Comment
<< Home