Áhugamál
Ég hef eignast nýtt áhugamál. Þetta áhugamál stunda ég af kappi og elju þegar ég ætti að vera að skrifa pistla, undirbúa kennslu, klára MA ritgerðina mína og lesa merkileg fræðirit (sumir myndu eflaust bæta bloggi við þennan lista).
Ég er sem sagt haldin óstjórnlegri fíkn í tvær tónlistarvefsíður.
Annars vegar er það www.last.fm þar sem hægt er að búa til sína eigin útvarpsstöð. Þegar ég hlusta á hana sækja á mig áleitnar spurningar á borð við: Hvað gerist ef ég bý til útvarpsstöð með lögum fyrir þá sem fíla James Last, The Buzzcocks, Clash, Billy Holiday og Mugison?
Svo er það www.webjay.org sem er síða fyrir bandaríska unglinga á barmi sjálfsmorðs sem hafa ekkert betra við tímann að gera en að búa til playlista sem síðan er hægt að hlusta á í gegnum netið. Þetta finns mér mjög skemmtilegt. Núna er ég til dæmis að hlusta á lagið "Lesbian Vampires from Outer Space" með hljómsveitinni Scary Bitches. Sem er reyndar ekki jafn skemmtilegt og maður hefði haldið.

3 Comments:
At 4:42 PM,
MaggaBest said…
loggaðu nú meira, þetta er fínasta start...
At 9:14 AM,
ÞG said…
Já, fer ekki að koma tími á nokkrar línur?
At 12:34 PM,
Anonymous said…
Very nice site!
» »
Post a Comment
<< Home