Endurfundir
Mér er tjáð að maður eigi að blogga á hverjum degi og hef ég nú þegar fallið á því prófi. Ég er eiginlega búin að komast að því að bloggarar séu bara auðnuleysingjar og dagdrykkjufólk, hvernig má fólk eiginlega vera að þessu?
Ég eyði tíma mínum venjulega í göfugri hluti eins og til dæmis að hitta fólk sem var með mér í grunnskóla en það gerði ég um helgina eftir 20 ára hlé.
Sviðið er semsagt endurfundasamkoma árgangs 85 úr ónefndum grunnskóla í breiðholtinu sem Gísli Marteinn stærir sig einatt af því að hafa gengið í þegar hann heldur gettóræðurnar sínar. Ekki veit ég um neinn sem er jafn stoltur af því að vera úr breiðholtinu, þetta er greinilega eitthvað ímyndaratriði hjá honum.
Fyrrum töffari segir við bloggjómfrú: "Við erum eina fólkið sem hefur virkilega lifað lífinu í þessum árgangi.
Bloggjómfrú: "Nú, hvað hefurðu fyrir þér í því, ungi maður?"
Fyrrum töffari: "Það er af því að við eigum ekki börn"
Bloggjómfrú: "Bíddu, áttu ekki barn?"
Fyrrum töffari: "Jú"
Bloggjómfrú: "hrmppff????" og gekk síðan á braut.
Átti maðurinn við að gæfa okkar felist í því að hafa ekki átt börn saman? Sem voru blessunarlega alltaf hverfandi líkur á.
Svona voru flestar samræður það kvöldið.

7 Comments:
At 10:41 AM,
Anonymous said…
JESS! Byrjuð að blogga! Næst mun Sigurrass halda tónleika! Ó-já
Svanrass
At 2:37 AM,
ÞG said…
Kíktu endilega á Sissu:
svenniogsissa.blogspot.com
At 11:37 AM,
Erna E. said…
Það er í sjálfu sér ekkert að því að taka blogghlé - en samt svolítið vafasamt að byrja bloggferilinn þannig. :)
At 12:21 PM,
Kristín said…
Það er fullt af fínum bloggurum sem blogga óreglulega. Málið er bara að gera það vel... eða eitthvað...
En vorum við einhvern tímann samfó í gettóinu?
At 4:05 PM,
gotti said…
Nohh... bara skrópað í blogginu í dag. Ég hlakka til að lesa það sem þú skrifar á morgun :)
At 4:53 PM,
kókó said…
menntaskólaendurfundir okkar voru pínu gáfulegri - en einmitt margir sem féllu í sömu "hlutverk" og þá.
At 3:01 AM,
thorges said…
jú, Parísardama, gott ef ekki var :)
Post a Comment
<< Home